Jááá, þar sem síðan virðist vera að fá rugl mikla aðsókn ennþá
þá ákvað ég að henda inn smá recap um það sem við drengirnir erum
að gera.
Elvar - Kallinn að verða atvinnumaður boltanum,
vinnur svo hjá Kópavogsbænum í einhverri aumingja vinnu með Sigga
og Ívari. Greyið er víst eitthvað ekki alveg í lagi í hausnum þessa
dagana því hann segist þurfa hugsa sig um hvort hann ætli að koma
með til Benidorm eða ekki. Þyrfti að henda manninum í skoðun.
Hrafnkell - Drengurinn er á fullu
sumarskólanum, sömuleiðis í ræktinni. Svo vinnur kvikindið þar á
milli þegar hann hefur tíma. Hörkuduglegur alveg hreint, enda
rómaður fyrir vinnusemi og dugnað.
Hagalín - Hagalín kallinn, útúrtjúttaður, útúr
tanaður að lifa lífinu með stæl. Vinnur í Ice filmusetningu sem er
víst hörkupúl. Er á leiðinni til Hróaskeldu eftir nokkra daga þar
sem hann og Ívar munu kúra saman í tjaldi í heila viku.
Ívarinn - Þegar Ívar er ekki að þrífa flotta
bílinn sinn þá er hann vinnandi í bæjarvinnunni með Sigga og Elvari
eða að vinna hjá Pabba sínum þar sem hann og nokkrir Pólverjar eru
orðnir bestu vinir. Korwa
bletzch! Einnig er hann að fara út með Halla til
Hróaskeldu þar sem hann verður duglegur að taka sporið.
Siggi - Siggi aka studmeister er á fullu að
sinna kellingunni, fer með henni í útreiðistúra í sólarlaginu og
býður henni uppá rómantískar lautarferðir og morgunmat í rúmið.
Þvílíkur rómantíkus og fyrirmyndar herramaður hefur víst aldrei
sést áður. Fyrir utan þetta er hann á fullu að vinna í N1 á
nóttunni og svo á daginn vinnur hann hjá pabba sínum. Siggi doesn't
sleep, he waits.
Haukurinn - Haukur laukur mar, hvað er að
frétta af honum.. ThA PlaYa.. Kvikindið er víst eldhresst með sitt
eigið fyrirtæki þar sem hann gengur um göturnar og selur konum
túrtappa, enda rennblotna þær bara við að bera hann augum.
Finni - Ég hef nú séð voða lítið af honum en
hann er víst að vinna og djamma eins og vitleysingur, en sparar
hverja einustu krónu sem hann fær fyrir Benidorm þar sem ætlar
gjörsamlega að sleppa af sér beislinu eins og við hinir!
DaviD - Þvílíkum stakkaskiptum hefur þessi
drengur tekið, maður sér hann ekki lengur nema að hafa 2-3
kellingar utan um arminn. Já, kallinn er orðinn þvílíkur pimp að
annað hefur ekki sést í manna minnum. Einnig er hann búinn að vera
duglegur að halda klassa partý þar sem allir eru velkomnir og fara
ekki út vonsviknir.
Andri - Sjáið drenginn keyra um á Audi A4
'2005, já ekkert grín þar á ferð. Þykir vinsæll valkostur þegar það
kemur að rúntinum. Er annars að vinna í Kirkjugörðum Reykjavíkur
með þeim heitustu á markaðinum og er duglegur að tana þegar hann á
að vera að vinna. Einnig kominn með nýtt viðurnefni; Grillmeizter
2007, já steikurnar sem ég hef verið að setja ofan í drengina þegar
við hittumst og grillum eru víst svo svaðalegar að þeir ganga heim
klístraðir í buxunum.
Já, svona fyrir utan þetta þá erum við drengirnir duglegir að
skemmta okkur og þess vegna lítill tíma til þess að blogga. Núna
eru u.þ.b. 3 vikur í Benidorm þar sem við drengirnir munum skemmta
okkur nonstop í 2 vikur. Auðvitað verður aragrúi af myndum og
videoum fyrir ykkur öll þegar við komum heim.


Annars óska ég ykkur bara gleðilegs sumars
- AndriE